Wednesday, September 13, 2006

Allir komnir heim...

Sei, sei! Þá eru allir meðlimir TeamPak loks komnir heim á klakann aftur. Við fyrstu athugun virðast allir hafa sloppið giftusamlega frá ferðinni og Pakistan, jafnt líkamlega sem andlega.

Til að halda upp á áfangann þá er hér örstutt myndasýning til að æsa menn enn frekar upp fyrir stóru myndasýninguna í vetur...

Sunday, September 10, 2006

Síðustu dagarnir....

Jæja, nú var ég svo sniðugur að setja íslenska lyklaborðið upp á þessa tölvu - þannig að pistillinn verður vonandi læsilegri.

Íslensk Bollywood stjarna?
Um leið og ég kom upp á hotel í Mumbai fór managerinn að spyrja mig hvort ég hefði áhuga á að taka þátt í Bollywood mynd. Kvikmyndaiðnaðurinn í Indlandi er RISASTÓR (veltir meiru en Hollywood las ég einhvers staðar...satt?) og það er nokkuð vinsælt að fá Vesturlandabúa til að vera bakgrunnsdúkkur. Var búinn að heyra að þetta væri heljarinnar vinna og langir dagar og flestir sem prófuðu þetta gerður þetta bara einu sinni. Sá dagur væri alveg þess virðri því að upplifa einn dag í Bollywood-stúdío væri magnað. Ég ákvað að slá til. Huxaði líka með mér að ég væri mun-gerðarlegri en hinir vesturlandabúarnir á svæðinu þannig að ég fengi pottþétt eitthvað bitastætt....einmitt! ....svo er þetta líka velborgað - 500RS (ca 750íkr) fyrir daginn!

8:30 vorum við þrjú tilbúin á hótelinu. Auk mín ætlaði ein kanadísk og ein bresk stelpa að reyna að "meikaða". Útsendari kvikmyndaversins náði í okkur og lóðsaði okkur inn í rútu stútfulla af öðrum vonbiðlum frægðarinnar. Svo var burrað upp í e-a verslunarmiðstöð þar sem taka dagsins átti að fara fram.

Það er óhætt að segja að á tökustað var samansafn af strautlegu og skringulegu fólki (og ég sjálfsagt enginn undantekning). Stífmálaðar asískar stelpur með stjörnur í augunum, léttklæddar rússneskar dansmeyjar, hrikalegir afróhausar, hinn almenni bakpokalúði, alþjóðlegir hnakkar og inverskir spaðar svo einhverjir séu nefndir. Ég brosti að þessu öllu saman og hafði gaman af. Þetta yrði ógleymanlegt.

Til að drepa tímann áður en aksjónið hæfist byrjaði ég að ganga um og tjatta við fólk. Marilyn Manson frík hafði meiri áhuga á úrinu mínu en mér, furðulegur ástralskur karl í tilvistarkrísu bölvaði þessu Statistabollywoodbatteríi (en var samt að gera þetta í 8-skipti) og Dax hinn indverski var glaður að e-r spjallaði við hann eftir 3 vikna Mumbai frí einn á báti. Allir þessir fírar bliknuðu í samanburði við Woskey hinn Suður-Afríska!

Mumbai mania
Woskey og ég hófum spjall og ég gat ekki annað en skellihlegið að honum. Ótrúlegur kjaftakarl, hnittinn, öruggur, hálfóskiljanlegur en umframallt viðkunnalegur. Eftir dágott spjall spurði hann hvort ég væri svangur. "Þaldénú". Hann spurði hvort ég vildi kíkja með honum að borða, þeir myndu hvort sem er ekki byrja að taka upp fyrr en eftir rúmlega tvo tíma. "Þaldénú", svaraði ég.

Við rukum út úr partíinu og út á götu. Smá hik á mér þegar hann samdi við leigubíl þar sem ég hélt að staðurinn væri bara í röltifæri. "No, problem. The place is not far away. It's called Shalimar. We'll go there and make it snappy". Jæja ok, best að tékka á þessu. Leigubíll í fjölmennustu borg Indlands er nú ekki beint það varasamasta. Inn fórum við og lögðum af stað. Woskey hélt áfram að blaðra og ég reyndi að svara við og við þegar ég skildi hvað hann sagði. Skyndilega henti hann nokkrum aurum í leigubílstjórann, hreytti e-u út úr sér og sagði mér að fara úr bílnum. "He is trying to trick us! I will not be intimidated by these focking Indians!" Jæja, leigubílsjóri að plata útlending er nú ekki eins ólíklegt og að KR verði aftur Íslandsmeistari þannig að ég fylgdi stráksa. Leigubílsstjórinn hundfúll rauk út úr bílnum og hrópaði fúkyrðum að okkur. Woskey gekk að honum og svarði fullum fetum: "You don't intimade me you (blót á S-Afrísku)" Gengum svo spölkorn áfram og stukkum inn í næsta leigubíl. Á þessum tímapunkti var Security Alertness-stigið mitt hækkað úr 3 í 4 (á skalanum 0-5). Það fór ekki lækkandi þegar félaginn fór að spyrja mig einkennilegra spurninga eins og "Is dealing with gold a lucrative business in your country, because me and my friends are dealing in gold" og "Me and my friends believe in not staying for a long time in the same place. We like traveling. The problem for us is acquiring visa. Can you arrange for an official company invitation to your country for my friends so they can get a visa?" Eeeehh ég held ekki. Þegar hann stoppaði ekki leigubílinn þar sem hann keyrði framhjá veitingastaðnum, sem hét Shalimar, fór ég að huxa um að koma mér í burtu. "Akkurru stoppum við ekki", spurði ég. "Ég ætla að fara með þig á betri stað, S-Afrískan stað!" Í kjölfarið fylgdu lýsingar á S-Afrískum mat sem hann endaði með setningunni: "South-Africans are the giants of the World, you believe me right?"

Fórum úr leigaranum fyrir framan vínbúð. Hann þekkti starfsmanninn og þeir bulluðu eitthvað saman. Þegar Woskey var að spjalla við e-n annan spurði ég hann hvort hann kæmi oft með e-a gaura hingað. Já, ca nýr á hverjum degi. Hmmm...ekki hljómaði þetta nú skemmtilega.

Héldum nú för okkar áfram að þessum dásamlega veitingastað. Fórum inn þrengri götu og fáfarnari. Þegar Woskey bauð mér að fara upp þröngar tröppur inn í ómerkt hús hækkaði statusinn upp í 5 og sagðist ekki fara þarna inn. Hann gerði allt til að sannfæra mig um að allt væri OK en það var ekki séns að hann fengi mig til að fara inn í þetta helvíti. Kallinn setti svið ægilegt sjóv og reyndi að gera grín að þessu við aðra sem horfðu á þetta. Sagðist svo ætla að fara inn og ná í mat og svo færum við aftur á tökustað. Til að undirstrika "heiðarleika" sinn fékk hann mig til að geyma sitt man's-bag. Ég held að það hafi verið gert til að tryggja það að ég færi síður því hann sá hvað ég er heiðarleg sál (og ég sá að sama skapi hvað "his eyes deceived him"). Þetta virkaði í 2 mín. Þá henti ég töskunni inn i stigaganginn, rauk í burtu og tók taxa upp á hótel. Ekkert meira Bollywood-kjaftæði hér......hvort sem er ömurlegarmyndir....;-)

Restinni af Mumbai-tímanum eyddi ég svo bara í rölt og leigubíla. 2 tíma leit um hálfa borgina að skrifstofu British Airways verður sérstaklega í minnum höfð.

Get ekki mælt með þessari borg...frekar boring.

Haldid til sudurs
Síðustu klukkustundirnar í Mumbai eyddi ég í innanlandsflugstöðinni. Hún var afar óindversk, hrein og fín. Flugferðin var til fyrirmyndar og ég upplifði mesta fótapláss sem ég hef haft í flugvél frá upphafi. Hver hefði átt von á því í Indlandi??

Rúmlega klukkutíma síðar var ég staddur í Bangalore í S-Indlandi. Ef ég hefði tekið lestina þessa leið hefði ferðalagið verið 24klst og verðið 1000kr minna...þarf að spá í þessu?

Bangalore minnti mig nú bara á smáþorp eftir dvölina í Mumbai. Samt búa hérna rúmlega 6milljónir (16-18milljónir í Mumbai). Bangalore er miðstöð tölvuiðnaðarins á Indlandi og mikill uppgangur þarna....og loftmengun.

Vafasamir menn + Steppo = sönn ást
Já, það átti ekki af mér að ganga. Eyddi deginum í dag að rölta um borgina. Hún er ekkert spes og eiginlega frekar glötuð nema þér finnist indversk borg að rembast við að vera vestræn töff.

Nema hvað að á einum tímapunkti þegar ég staldraði við hjá kaupmaninnum á horninu til að kaupa vatn tók ég eftir Indverja einum álkulegum sem mændi á mig. Kippti mér lítið upp við það því annar hver maður hérna starir á mann. Hinn reynir að selja þér eitthvað. Ég hélt för minni áfram. Sá útundan mér að sá álkulegi gekk á eftir mér....það þarf nú ekki að þýða neitt. Þessi gangstétt er nógu stór fyrir okkur báða. Til að vera viss ákvað ég að fara í allmikinn þrammgír. Það er nefnilega alsannað að Stebbaþramm = Indverjaskokk. Fannst svona eins og félaginn yki líka við sinn hraða. Þegar ég staðnæmdist eitt andartak heyrði ég sandalaflaps og sá þann álkulega smáskokka og staðnæmast nokkrum metrum frá mér. Gjóaði augun til mín lymskulega eins og til að taka mig út. Ég labbaði nokkur skref og gerði mig tilbúinn að fara yfir götuna. Stalkerinn gerði slíkt hið sama. Eftir að horfa á umferðina liðast um götuna "hætti ég við" að fara yfir götuna og hélt þess í stað áfram eftir gömlu stefnunni. Jú jú, félaginn gerði slíkt hið sama. Þarna var mér nóg boðið. Snéri mér við gekk að gaurnum og sagði: "Are you f#$%ing following me?" E-r furðuleg höfuðhnykkur fylgdi hjá aðdáendanum og hann rétti út hendina að mér. Ég veifaði hann frá mér og sagði honum að drulla sér í burtu. Eflaust grátandi gekk hann frá mér en gjóaði augun stöðugt til mín. Ég fór hins vegar yfir götuna og hægði för mína til að auka bilið á milli okkar. Því miður virkaði hann fatta það og hægði sömuleiðs sína ferð hinum megin við götuna. Þá tók ég mér stöðu og byrjaði að stara á hann. Næst þegar hann leit á mig mætti hann Cebe-augnaráð og ylgdar augabrúnir. Það fældi hann nú ekki í burtu en hann mætti ekki Cebe-augnaráðið. Næst þegar hann gjóaði til mín augun baðaði ég út höndum og kallaði til hans: "Ertu fokking fáviti!" (á íslensku vitanlega). Jæja, mér var nóg boðið. Ég var að stefna á kaffihús áður en þetta frík kom til sögunnar...og kaffi skildi ég fá. Tók strauið (og félaginn fylgdi hinum meginn við götuna). Sá kaffihúsið hinum megin við götuna og tók til við að laumast á milli rickshawa og bíla til að komast í koffínið. Rétt áður en ég steig inn leit ég tilbaka og sá að stalkerinn var horfinn. Já, eitt ævintýrið tekur við að því næsta.

Ísaland heillar
Á morgun yfirgef ég svo Indland og á morgun verð ég á Íslandi, inshallah! Búið að vera helvíti viðburðarrík ferð og mar hefur lært heilmikið af þessu.

Hlakka til að koma heim!

P.S. Textinn er skrifaður í einni bunu og ekki prófarkalesinn fyrir publish. Tek enga ábyrgð á stafsetningar- eða málfræðivillum og hananú!

Thursday, September 07, 2006

Thognin rofin..

Nu eru lidnir nokkrir dagar sidan sidasta blog thannig ad thad er videigandi gera grein fyrir hvad hefur gerst undanfarna daga.

Breytt plon
Thegar Jaisalmer vistin okkar var ad ljuka kom upp su stada ad Sissi thurfti ad skella ser heim hid snarasta. Graejadi ser flug heim fra Delhi i stad thess ad halda sudureftir til Bangalore thar sem vid eigum pantad flug heim.

Ad kvoldi 1. sept, a brautarstodinni i Jodhpur, skildum vid felagarnir med handabandi. Sissi lagist til svefns og beid thess ad lestinn naedi Delhi medan eg stokk ut og od mannhafid i att ad hotelinu. Bolvadi enn og aftur ad hafa ekki myndavelina uppivid. Thad la folk bokstaflega ofan a hvert odru i ankanalegum stellingum...flestir i fastasvefni. Thetta utskyrir sennilega malshattinn: "Thar sem er plass, thar er Indverji." Nema hvad labbid ad hotelinu var hefdbundid - lemja fra ser nokkra betlara og waddevah nokkra rickshaw okumenn ("It is dangerous to walk") . Vakti svo hotelstarfsmennina og kom mer inn a herbergi.

Shaken not stird
Daginn eftir atti eg bokada rutuferd til Udaipur. Ekki skil eg hvad their eru ad skra saetisnumer a thessa blessudu rutumida thvi manni er varpad fram og tilbaka thar til einhvers skonar stodugu jafnvaegi er nad. Haldid var afram ad fylla i rutuna thott saetin vaeru oll upptekin og eg skildi malshattinn barasta ennbetur. Eftir 8 tima rutuferd var mar svo kominn a afangastad.

Udaipur er sogd vera "romantiskasta borgin i Indlandi" eda var thad i Rajasthan heradinu bara? Hvad um thad...en hun er a.m.k. nokk falleg. Umhverfid er a.m.k. fallegt. Skogivaxinn fjoll og votn a vixl. Upp a fjallstoppunum eru svo gjarnan hallir, virki og thviumlikt. Ibuar eru stoltir og kalla Udaipur - "The White City" - thvi hun er ospillt = "aldrei" undir yfirradum Breta. Ad odru leyti er hun litid hvit...fyrir utan Lake Palace en thad er magnadur skitur. Kongur einn let nefnilega byggja eitt stk holl a eyju ut i midju vatninu sem Udaipur er vid. Meira en ad byggja holl a eyju...thvi eyjan sest ekki i dag. Thad er thvi likt og hollinn risi upp ur vatninu. Thad er sennilega eina byggingin sem er hvit...enda er rekid tharna luxushotel sem kostar einhverja hundrudi$ nottin. Thad er thvi peningur til ad hreinsa drulluna og halda thessu hreinu.

Midbaerinn i Udaipur er ansi skemmtilegur - litlar throngar gotur thar sem bera otrulegt magn af farataekjum og folki og endalaust af. Fullt af veitingastodum sem allir eru med Octopussy show 7:30PM every night. Eftir nokkra daga tharna er thetta ordid "same, same" og hugurinn stefnir annad. I thetta skipti...Mumbai

Bollywood myndir...verkfaeri djofulsins?
Til ad komast til Mumbai thurfti eg ad taka 16tima naeturrutu..hressandi. Splaesti i luxus = venjulega rutu med venjulegt fotaplass. Ferdin atti nu ekki eftir ad vera lett. Daginn sem eg atti ad fara greindist eg med....eeeehh gridarlega throf til ad heimsaekja salernid ott og titt.... Eg atti thvi engra kostra vol en ad brydja Immodium ott og titt til ad gera mig ferdafaeran.

Rutan sem slik var agaet en thad sem verra var ad hun var lika med sjonvarpi. Thad sem var svo enn verra ad i sjonvarpinu voru syndar 3 (eda voru thaer 4?) Bollywood myndir. Thad sem enn enn verra var ad hatalarnir voru bara med tvaer stillingar - off og extra hatt. Uff...Kill me, kill me, kill me now!!! huxadi eg. Tha for eg bara ad huxa um skutu og sofnadi ut fra e-u faranlegu songatridi thar sem soguhetjurnar voru ad geibblah sig i "astridufullum dansi" uti a e-u engi...sennilega bara i Tirol!

Nokkrum timum sidar og einni aelu (maginn ekki alveg kominn a swing aftur eftir allt Immodiumid) var eg svo kominn til Mumbai. Thad er afarstor borg. Einni leigubilaferd sidar (thar sem leigubilstjorinn reyndi ad hostla mig...ovenjulegt verd eg ad segja) var mar kominn inn a hotel. Svefninn tok tha vid.

Fleiri aevintyri hafa dunid yfir en thau fa ad fylgja sidar...thvi inneignin er ad renna ut.

Bless i bili!

Wednesday, August 30, 2006

Pakistan vs. Indland....

Jaeja godir halsar.

Fagnadarlaetunum eftir brotthvarf Dana og Helga er rett ad ljuka en vissara ad gera adeins upp sidustu daga stuttu mali.

Piltarnir tveir heldu af landi brott thann 27. Dagana a undan vorum vid bunir ad eyda i Delhi ad mestu. Undantekningin var skottur til Agra thar sem "romantiska grafhysid", Taj Mahal, var skodad. Sissa finnst stadurinn allt annad en romantiskur...fallegur, klarlega, en ekki romantiskur. Eg meina...hver bidur um hond sinnar elsku i kirkjugardi...eins og ku tidkast tharna. Delhi er thokkaleg borg. Heljarinnar areyti en nokkrir stadir sem haegt er ad skoda, sossem Rauda Virkid, Jamah Mashid moskuna og sitthvad fleira. Eftir nokkra daga er thetta ordid "same, same" og hugurinn stefnir annad.

We changed this city!
Ekki var haegt ad kvedja piltana an thess ad teygadur yrdi bjor. Grofum upp stadin Regents blues og parkerudum okkar rassi thar. Serstada stadarins er ad hann selur innfluttan bjor, sem er klarlega miklumunbetri en Kingfisher sullid sem her er selt vidast. Haegt og rolega eftir thvi sem leid a kvoldid motadist stadurinn ad thorfum Islendinganna....their drukku ju mest og tha thurfi ad hafa goda. Tonlistarstefna stadarins fasadist orugglega ur Abba og thess hattar yfir i AC/DC, Rage Against the Machine og sidast en ekki sist....Metallica! A einu bordinu satu svo tuskulega klaeddir Islendingar og dreyfdu flosu yfir turbana og sari. Sumir Indverjarnir toku upp breytta sidi og lystu thvi yfir ad their aetludu til Islands hid snarasta. Held ad skemmtanalifi Delhibua hafi borid varanlegan skada... Ut foru svo drengirnir upp ur midnaeti og med ordum og athofnum lystu thvi yfir ad djakkid vaeri komid til Indlands.

Menningarvitar a ferd og flugi
Eftir ad Dani og Helgi yfirgafu oss forum vid Sissi a flakk sem ser ekki fyrir endan a fyrr en i seinni parts sept. Erum nysloppnir fra Jodhpur, baer sudvestur af Delhi. Sa statar af gridarstoru virki, allgomlu, sem aldrei hefur fallid i ovinahendur. Baerinn eru subbupleis, eins og flestir stadir a Indlandi, og her idar allt af lifi. Rickshaw okumenn eru thar ovenjuagangshardir og beita ymsum brogdum til ad plata turhesta upp i thrihjolada velfakasina. Besta daemid er thegar undirritadur var ad fara yfir gotu og inn a hotel. Agengur rickshaw-okumadur baud fram thjonustu sina sem eg afthakkadi og benti a hotelid. Sa do tha ekki radalaus og svaradi um hael: "Walking is not allowed here". Urradi a hann "Waddevah!" honum til mikillar hraedslu og let vikinginn vera ad sinni.

Nuna erum vid staddir i baenum Jaisalmer i Thar-eydimorkinni, ekki langt fra landamaerum Pakistan. Her er lika allmagnad virki, kallad Gullna Virkid. Thad er gridarstort og um 25% baejarbua, bua innan veggja virkisins enntha. I Jaisalmer bua ca 60 thaus. Her eru throngar og skemmtilegar gotur, fullt af agengum solumonnum (standard svar: "Jeee, waddevah!"), beljum og sidast en ekki sist....engum okutaekjum. Manni lidur eins og Palla einum i heiminum ad heyra ekki ca 2456 bilflaut a hverri minutu. Verdum herna i dag og a morgun og holdum sidan ferdinni til sudurst, til baejarins Udaipur. Sa stadur er m.a. fraegur fyrir ad James Bond myndin Octopussy var tekin upp thar.

Fleiri frettir sidar.

Sunday, August 27, 2006

Nokkrar myndir

Skoda mega myndirNu eru drengirnir farnir heim, thad er Helgi og Halfdan, og vid hjonin einir eftir herna. Tad er Sissi og Steppo. Loggur sidustu daga verdur ad koma sidar, thvi nu erum vid ad hoppa upp i lest fra Delhi til Jodphur. Thar eru einmitt flod thessa dagana og i naesta bae, Balmar (?), letust rumlega 80 manns i vikunni. Alltaf nog af rugli i gangi i thessum heimshluta.

En tidindi dagsins eru ad okkur tokst ad finna XP vel med saemilegri tengingu og henda inn sma synishorni af myndum. Njotid vel.

Eg vil svo benda a ad islensk hegningarlog lita thad strongum augum thegar bloggsidur og myndasidur eru skodadar an thess ad skilin seu eftir comment. Skamm skamm!

  • Tekka a flottustu myndum sidan i Nam


  • Hils,
    Sissi og Steppo

    Monday, August 21, 2006

    Bleiknefjar i Indlandi

    Timinn i Lahore for ad talsverdu leiti i reddingar. Graeja plasttunnur (nei - thetta er ekki leidangur og thvi til sonnunar keyptum vid APPELSINUGULAR plasttunnur), og flutning a 150 kg. af klifurdrasli og bunadi til lands iss og elda.

    Vid Steppo tokum letta magapest heima hja Ali, lagum tharna inni a heimili thessarar fraebaeru Pakistonsku fjolskyldu eins og slytti. Allt til ad kotta, vid verdum ad lukka vel thegar vid komum heim. Lykillinn ad megruninni er ad kaupa is ur vel einu sinni i viku og tha stoppar ekkert i maganum. Thad sem staldrar ekki vid I maganum sest ekki A magann.

    Eins og ad anda i heita pottinum i Laugardag...
    Hitinn i Pak er kaefandi thessa dagana, 40 stiga hiti og 100% raki i bodi monsun timabilsins. Vid endudum a ad flyja a loftkaelt hotel.

    Nadum einum godum turistadegi i Lahore. Skodudum Lahore virkid, sem er ansi flott og elstu hlutarnir afar gamlir. Thad er a minjalista hja UN, en engu ad sidur er otrulega mikill sodaskapur tharna. Selt inn en menn virdast samt vera til i ad leggja haspennulinur i gegnum gardinn og hafa ruslahaug thar.

    Bordad var a fraegum veitingastad i rauda hverfinu sem heitir Coco's Den eda eitthvad slikt, rekinn af listamanni sem var sonur "Dancing girl", en svo nefnast glodu konurnar i landinu. Otrulegur tviskinnungur reyndar, thar sem truin bannar allt svona, ad thessi starfsstett fyrirfinnist i landinu.

    Landamaera battl
    Eftir thokkalegan mat var keyrt ut a Wagha landamaerin milli Pakistan (lands hinna hreinu) og Hindustan (lands Hindua, Indlands). Thar hafa fanaathafnir landamaeravardanna landana throast ut i hreina gedveiki.

    Menn klaedast rosalegum buningum, ganga gaesagang fram og til baka thannig ad their nanast sparka i hausinn a sjalfum ser og vidhafa allskonar ognandi tilburdi. Oll athofnin er algjorlega speglud sitthvoru megin vid girdinguna af landamaravordum hvors lands. Thetta er mjog fyndid, thjodarleg tonlist a fullu blasti, ahorfendur hvoru meginn oskra til studnings sinum monnum. Vid oskrudum Pakistan sindabad (?), eda "the great". Gamlir kallar med Pakistan fana hlupu fram og til baka og steyttu hnefana reidilega til ovinarins i austri. Hin besta skemmtun sem ohaett er ad maela med.

    Hver vill flytja cargo fyrir 50 ara gamlan mann?
    Fostudagurinn for i ad graeja cargo mal hja okkur Dana. Vid fundum loksins gaeja sem var til i ad bjoda okkur saemilegt verd i 150 kg., 309 kr. pr. kg. Eftir miklar samningavidraedur og sigarettureykingar inni a skrifstofu.

    Vid hofdum enga innflutningsskyrslu i hondunum svo vid mutudum tollinum til ad graeja eina slika. Dagurinn for i thetta og loks kl. 23 um kveldid var buid ad tollskoda hverja skituga flik, hverja pillu, smakka thurrmatinn, rifa upp svefnpokana og sleikja innleggin i skonum okkar svo eitthvad se nefnt. Thvilik og onnur eins tollskodun. Svo er bara ad bida og sja hvort dotid skilar ser heim.

    Nu erum vid opinberlegar bakpokarottur.

    Haldid til Hindustan
    Ali og fjolskylda voru kvodd med virktum og haldid yfir til ovinalandsins i austri. A landamaerunum mutudum vid tollinum annan daginn i rod, i thetta skiptid fyrir ad skoda EKKI dotid. Vid bara nenntum ekki ad standa i thvi og 50 kall a mann hljomadi vel.

    Sjokk ad koma yfir landamaerin. Fyrsti bjorinn i tvo manudi teygadur og konur a ferli ut um allt. Eg skil ekki hver leyfir thetta. Menningarmunurinn i thessum 59 ara adskildu tviburum er ansi mikill. Betlarar og solufolk herna megin er miklu agengara. Svo er eitthvad bolvad hvitt folk ad thvaelast her ut um allt. Oasaettanlegt.

    Hvitt er reyndar tiskuliturinn. Stelpurnar nota ekki brunkukrem heldur hvitukrem. Eda jafnvel bara frekar scary voru sem heitir skin bleach. Tu ert sko bara bondadottir ef thu ert brun. Ofnbokudu beyglurnar a Prada vaeru i mesta lagi nytilegar sem betlarar herna, gellurnar eru hvitari en Isfirdingur eftir hardan vetur. Reyndar lita stelpurnar i auglysingum og tonlistarmyndbondum ut fyrir ad vera evropskar frekar en Indverskar. Mikid er verid ad hringla i ykkur stelpur, madur a bara ad vera madur sjalfur ;)

    I Amritsar var Gullna hofid sidan skodad, magnadur stadur. Gullid hof sem stendur uti i midju vatni, umkringt thusundum pilagrima. Tharna hljomar Indverskur munkasongur allan daginn, otrulega roandi ad sitja tharna og slappa af. Ekkert areiti.

    Sidan burrudum vid til Deli i dag, sem tok allan daginn. Erum inni i "Litla-Tibet", hverfi med ormjoum gongugotum thar sem landflotta tibetar hafa komid ser fyrir. Fullt af godum kinverskum mat her. Bleiknefjar missa sig.

    Yfir og ut.

    Siz

    Tuesday, August 15, 2006

    Svitnad i sidmenningu

    Eftir dvolina i Gilgit leigdum vid okkur rutu til ad skutlast til Peshawar. Vid vissum ad thetta yrdi long keyrsla en ooo boy. Okum ad miklu leiti Karakoram Highway sem var byggdur a sjounda og attunda aratugnum i samvinnu Pakistana og Kinverja. Her i Pak er thetta verkfraedilega afrek hyllt sem attunda undur veraldar, thar sem hann sniglast um snarbrattar fjallshlidarnar 1000 metra fyrir ofan Indusfljotid.

    Verkfraedilegt afrek er skarri lysing. Kannski undur i mesta lagi. Veraldar er orlitid ofaukid.

    20 timar a dag koma maganum i lag
    Thessi ferd var alveg vidbjodsleg og Stefan aeldi eins og mukki med godu samlaeti kokksa, sem var ekki veikur af eigin mat i thetta skiptid. 20 tima bilfer i 40 stiga hita er bara ekki svo hressandi. Og vegurinn natturulega eins og godur fjallvegur, engin hradbraut sem sagt.

    Afangastadurinn var Peshawar, sem er klarlega klikkadasta borgin sem vid hofum heimsott her. Umferdin er snar, thar aegir saman ofurskreyttum Bedford rutum og vorubilum, hestvognum, motorhjolum og Rikshaw (ek. motorhjol med segli yfir - taxarnir a stadnum sem menga eins og eiturefnaverksmidja). Pakistanar eru afar rolegir ad edlisfari, sbr. vidbrogd vid festum i skridunum.

    Thegar their eru komnir undir styri breytast their i bandvitlausa rallokumenn. Og flautan er bara med ON/OFF stillingum. OFF stillingin hlytur reyndar ad vera bilud. Og vegna thess ad allir nota flautuna svo mikid eru flestir bunir ad breyta theim, thannig ad a gotunum hljoma logreglusirenur, filsoskur eda thadan af verra.

    Mengunin og hitinn baedi obaerileg en samt eitthvad heillandi vid borgina. Gaman ad rolta um basarana og sja hvad er i bodi, folkid mjog vinalegt og allir spyrja "how are you", sem virdist vera ISO 9001 setningin til ad hamra a utlendina. Thetta heyrir madur 999 sinum a dag.

    Kikt til Afghanistan
    Vid hofum natturulega mikla thorf til ad vera sem naest Petri Steini felaga okkar, thannig ad ollum radum er beitt.

    Til thess ad skoda einu leidina yfir landamaeri Afghanistan a thessum slodum, og sjalfsagt tha mest notudu, thurftum vid ad koma vid a 3 stodum. 1) Til ad leigja bil og ganga fra gjaldi 2) til ad borga Afridi tribal logreglunni leyfisgjald, fa utgefid leyfi og saekja vopnada tribal vordinn okkar sem kom med og 3) til ad ljosrita allt i 3 riti. Ad reka ljosritunarvel er serstakur bransi herna, eins og ad eiga sjoppu. Og allir eru vitlausir i ljosrit. Alltaf tharf leyfi og ljosrit.

    Thannig er mal med vexti ad Khyber pass er inni a aettbalkasvaedi, eins og storir hlutar af Nordur-Pak. Thar gilda log landsins adeins a veginum og 10 metra til sitthvorrar hlidar. Utan thess gilda aettbalkalog, thar raedur rad oldunga. Thar geta menn att von a "trial by fire" eins og segir svo skemmtilega i ferdabokinni okkar. Thvi er snjallt ad taka vord med AK 47

    Landamaerin voru svo sem ekki merkileg, adalega ferdalagid og umstangid i kringum thetta. Fyndid ad sja tolur a haedunum tharna i kring, 1-2-3 osfrv., thid thekkid thetta. Thaer takna "Durand linuna", en thad er nafn mannsinns sem teiknadi upp landamaerin. Staersta utgafa af landakorti sem eg hef sed, 1:1. Einnig ad sja hus Afridi folksins, sem eru virki, med 8 metra haum virkisveggjum, virkishlidi og vardturnum. Hver fjolskylda byr i storu virki. Skyldi hafa verid einhver ofridur tharna? Hugsanlega, thvi a leidinni til baka saum vid 2 smastraka med AK-47 alsjalfvirka hermannariffla.

    New York hustler
    Ef Ice T (isl. Iste) hefdi faedst i Peshawar hefdi hann eflaust sungid um Peshawar hustler. I stad hans a Peshawar hann Hassan okkar. Og i stad rapptonlistarinnar og klikumorda stundar hann ad gaeda (og lett ad hossla) ferdamenn.

    Vid hittum strakinn a vappinu hja moskunni og hann baudst til ad syna okkur gamla baeinn. Enn stendur tharna moska sem er ad mestu leyti fra 1670 en flestar eldri minjar tharna, sem na aftur til Mughal timabilsins, eru bara einn veggur her og thar a stangli. A tessu svaedi hafa reglulega rudst yfir hressustu stridsmenn hvers tima og rustad borginni.

    Hassan kallinn var frodur um borgina og baud af ser godan thokka thannig ad vid settumst nidur med honum og fengum okkur tebolla. Undirstungum hann sidan med hlut sem okkur langadi virkilega ad sja...

    DARRA ADAM KHEL - BYSSUBORGIN
    Hassan var ekki alveg a thvi ad fara med okkur thangad. Opinbera turistabatteriid hlo ad okkur thegar vid spurdum hvort vid gaetum farid til byssuborgarinnar. Ekki fyrir $500 var svarid. Borgin er buin ad vera algjorlega lokud utlendingum sidustu arin og er inni a aettbalkasvaedi.

    I lok 19. aldar fludi byssusmidur sem hafdi komist i kast vid login inn a aettbalkasvaedin til ad sleppa undan rettvisinni. Hann endadi i Darra og kenndi heimamonnum idnina. Sidan tha hefur adeins eitt verid framleitt i Darra: Byssur.

    Borgarbuar framleida um 800 skotvopn a dag. Thau foru adur i talibanana, en nu fara thau til skaerulida i Afghanistan og "frelsishermanna" i Kashmir, sem lata Indverska herinn kenna a thvi. Tharna ma fa AK-47, einnig haglabyssuutgafu af thessari gedthekku russnesku byssu, skammbyssur eins og Barretta og Gloch, haglabyssur med skammbyssuskefti og fleira skemmtilegt.

    Ibuarnir vinna hver sinn hluta af akvednu skotvopni a litlum 2-3 manna verkstaedum, svo er thetta allt sett saman a samsetningarverkstaedum. Ansi vel skipulagt og utkoman hreint otruleg, litur ut eins og byssa ur budinni.

    Vegatalmar og dulbuningar
    Vid hittum Hassan daginn eftir, hann var buinn ad graeja bil fyrir okkur og setja skerma i rudurnar svo vid saejumst ekki a vegatalmum. Stebbi var settur i annan thjodbuning, eda Shalwar Kameez, thvi ad hans var ekki nogu ekta fyrir svaedid. Helgi fekk hatt og arabaklut um hausinn. Vid aefdum soguna ef loggan stoppadi okkur: vid vorum a leid til Kohat ad skoda breska kirkjugardinn. Thad eru gong a leidinni.

    Spennan la i loftinu a leidinni. A einum timapunkti var loggan ad labba ad bilnum, en bilstjorinn smeygdi ser listilega a bakvid annan bil og framhja. Thegar vid komum til Darra byrjudum vid a thvi ad muta aettbalkaloggunni og drekka te med theim. Sidan roltu their med okkur um pleisid og syndu okkur allt, vopnadir (ju thid gatud ykkur rett til) AK-47.

    Thad var otrulega gaman ad kikja til Darra, og ekki skemmdi fyrir thessi otrulega 12 ara straka tilfinning ad vid vaerum ad gera eitthvad sem vid maettum ekki. Tho ad afleidingarnar hefdu ekki verid reidur kennari, heldur Pakistanskar loggur ad berja okkur i hardfisk.

    Smyglarabasarinn - langar ykkur ad sja heroin?
    Hassan sannfaerdi okkur um ad thad vaeri ekki oruggt ad fa ad skjota i Darra, thvi ad aettbalkaloggan tvofaldadi agodann med thvi ad lata Pakistan logguna vita. Thvi skelltum vid okkur a Smyglarabasarinn ad profa AK-47. Tharna er haegt ad fa allt milli himins og jardar, raftaeki, mordtaeki, hreinsiefni, fikniefni, skriddreka og eldspuandi dreka.

    Thar settumst vid inn i hassbullu thar sem geymd voru fleiri kilo af slikum efnum, hja fraenda Hass-ans. Tharna foru 10 solur fram fyrir framan nefid a okkur en okkur leist ekki a blikuna thegar gaurinn spurdi "viljid thid sja heroin?".

    Loks kom fraendinn med AK byssuna sina (thetta er kaflinn thar sem menn reyndu ad hossla okkur sko) og sagdi ad vid yrdum ad kaupa heilt magasin. Thad heldur 40 skotum, og skotid skyldi kosta 100 kall. Thad jafngildir 40.000 ISK leidrett fyrir verdlagi (x10). Vid settum upp sma leikthatt thar sem eg vildi fara. Thetta er allt hluti af prutt processinum her.

    A endanum fengum vid kulunum faekkad um helming, en enn a thessu faranlega verdi. Akvadum ad thetta vaeri god saga og thvi thess virdi. Thetta var nu bara eins og ad skjota ur einhverjum 22 cal. riffli, otrulega litid sem gerist. En fyndid ad standa inni i porti fullu af smyglvarningi, a svaedi thar sem engin log gilda, vid hlidina a fikniefnasala og skjota upp i loftid af russneskum hermannariffli.

    Eftir thessi aevintyri var ordid timabaert ad skoda nyja borg. Nu var "luxusinn" malid og tekin VIP ruta til Lahore. I henni faer matur halfa samloku, thad er loftkaeling og i hverjum 2 saetum sitja adeins 2, ekki 17. Sem er afar ovenjulegt.

    Bleiknefjarnir missa sig
    Nu erum i godu yfirlaeti hja Mouhammad Ali vini hans Helga her i Lahore. Naestu dagar verda notadir i ad skoda okkur um. Thetta er miklu vestraenni borg en thaer sem vid hofum sed i Pakistan. Thannig sjast stelpur uti a gotu herna (gulp!!!) og jafnvel yfirleit ekki med hulid andlitid. Hvad er ad verda um thennan heim?

    Her faest is sem ma borda, kaffi og fleira godgaeti. Vesturlandabuarnir eru ad missa sig og hafast vid i loftkaelingu med is i annarri og is i hinni.

    Fridur,
    Sissi